Fylgjast með reikningum
Við tengjum pósthólfið við reikningayfirlitið. Þar sjáið þið hvaða reikninga er búið að greiða og hverjir eru enn ógreiddir.
Gervigreind í daglegum rekstri
Sýnið okkur hvernig þið vinnið verkið í dag. Kannski færið þið reikninga úr póstinum í töflureikni eða skrifið svipaðan póst á hvern birgja. Við finnum með ykkur hvað gervigreind getur tekið að sér og sjáum um uppsetninguna.

Þjónustan
Við tengjum pósthólfið við reikningayfirlitið. Þar sjáið þið hvaða reikninga er búið að greiða og hverjir eru enn ógreiddir.
Við setjum verkefnin og gögnin sem þeim fylgja á einn stað. Sá sem tekur við verki sér hvar það stendur og við hvern á að tala.
Þurfið þið oft að biðja um verð í svipuð verk? Gervigreindin sækir upplýsingarnar í verklýsinguna og skrifar uppkast. Þið lesið yfir og sendið.
Hjá verktaka
Áður en verktakinn getur boðið í verk þarf hann að vita hvað undirverktakarnir taka fyrir sinn hluta. Við tengdum útboðsvefinn og tölvupóstinn við vinnusvæði í Notion þar sem hann heldur utan um útboðin og tengiliðina.
Á hverjum morgni sækir kerfið ný útboð og fylgiskjöl á útboðsvefinn. Starfsmaður skoðar þau í Notion og merkir þau sem hann vill vinna í.
Þegar starfsmaður færir útboð í vinnslu fer gervigreindin yfir Excel- og PDF-skjölin. Hún finnur þá hluta verksins sem kalla á undirverktaka, til dæmis lagnavinnuna.
Kerfið finnur pípulagningamanninn í tengiliðaskránni og semur póst þar sem beðið er um verð í lagnavinnuna. Starfsmaður les yfir og ákveður hvort pósturinn fer út.
Hafa samband
Hvað tekur tíma hjá ykkur í hverri viku? Sendið okkur nokkrar línur um hvernig þið vinnið það verk í dag.